Hvað er í gangi innra með þér?
- Björk Ben

- Feb 15
- 4 min read
Þú mátt vita að þú ert ekki brotin, þú ert ekki klikk eða verri en aðrir þótt þú hafir brotnað niður og grátið fyrir framan aðra eða öskrað á einhvern sem þú veist að átti það ekki skilið.

Þegar við missum stjórn á tilfinningum okkar snýst það yfirleitt aldrei um það sem er að gerast akkúrat á þeim tímapunkti, heldur er það af því að þú ert búin að birgja svo lengi inni hvernig þér líður og það sem þú þarft að segja eða gera.
Öll skiptin sem þú þagðir í stað þess að tala.
Öll skiptin sem þú lést lítið fyrir þér fara.
Öll skiptin sem þú valdir öryggið í stað þess að standa með þér.
Öll skiptin sem þú flúðir af hólmi í stað þess að mæta.
Öll skiptin sem þú upplifðir að það sem þú hefðir átt að segja vildu aðrir ekki heyra.
Öll skiptin sem þú upplifðir að þín líðan var ekki í lagi að sýna.
Öll skiptin sem þú upplifðir að það væri ekki öruggt að segja það sem þú vildir segja.
Öll skiptin sem þú upplifðir að það að vera þú hefði slæmar afleiðingar.
Öll skiptin sem þú valdir frið á þeirri stundu…með þeim afleiðingum að það sem þú upplifðir tilfinningalega situr fast innra með þér. Eins og lítið yfirgefið barn sem hefur engan til að tala við og engan sem skilur það. Lítið barn sem rífur sig niður í hvert skipti fyrir að vera ekki nóg og eiga ekki skilið…
Það er taugakerfið þitt sem heldur á upplifun þinni eftir öll þessi skipti, reynir að passa að tilfinningar þínar rjúki ekki af stað með hvelli, en og í hvert skipti sem þú ferð gegn þér á þennan hátt, þenst taugakerfið þitt meira og meira út, það er að reyna að verja þig og vernda. En það er ekki endalaust hægt að bæta við í taugakerfið og með tímanum þarf ekki mikið til að koma þér úr jafnvægi eða þú missir stjórn á þér.
Hugur þinn reynir allt sem hann getur til að hjálpa þér, t.d. að finna þér eitthvað sniðugt að gera sem dregur athyglina frá þessari innri líðan, kannski fíkn í einhverskonar formi sem deyfir og þú finnur stundar vellíðan öðru hverju. Þú drekkir þér í skemmtilega vinnu eða áhugamál, allt til að líða betur og gleyma þér.
En til lengdar gengur þetta ekki, með tímanum áttu erfiðara og erfiðara að vera með sjálfri þér, það er of erfitt, tilfinningarnar brjótast nefnilega fram þegar við gefum okkur rými til að takast á við þær og losa okkur við þær. En hugurinn hefur sannfært okkur um að það sé bara of erfitt að takast á við þær, við getum það ekki og við hugsanlega meigum það ekki, því við máttum það ekki sem börn….
En þú mátt vita…
Þú ert ekki brotin.
Þú ert ekki of viðkvæm.
Þú ert ekki drama drottning.
Þú ert ekki andlega veik.
Þú ert ekki stjórnlaus.
Þú ert ekki klikkuð.
Þú ert ekki vond.
Þú ert bara búin að fá nóg.
Líkami þinn vill að þú sleppir tökunum af þessu, þetta er komið gott.
Taugakerfið þitt getur ekki meir, það er eins og yfirfullt glas sem skvettist úr við minnsta tilefni.
Þitt innra sjálf þráir innri frið og jafnvægi.
Þetta er í raun ástand sem mjög margir eru í en flestir vilja ekki viðurkenna.
Það sýnist of erfitt að takast á við lífið og því miður eru margir sem eru algerlega aftengdir tilfinningum sínum og þekkja þær illa.
En þú mátt líka vita…
Þér er óhætt.
Þú getur tekist á við þínar eigin tilfinningar.
Þú þarft ekki að birgja þetta inni endalaust.
Vissir þú að tilfinning dvelur aðeins í 60 til 90 sec. hjá þér ef þú sleppir því að hengja sögu við hana. Ef þú bara leyfir þér að finna hvar í líkamanum hún birtist og leyfir henni að koma og þú gefur þér leyfi til að finna hana almennilega og viðurkennir hana, þá fer hún jafn fljótt og hún kom.
Gefðu þér leyfi til að finna.
Gefðu þér leyfi til að upplifa.
Gefðu þér leyfi til að viðurkenna líðan þína.
Gefður þér leyfi til að sleppa tökunum.
Taktu utan um litlu þig sem er innra með þér og hefur í raun verið við stjórnina þegar þú hefur tekist á við tilfinningar þínar hingað til. Taktu utan um hana og segðu henni að nú skulir þú taka við og taka ábyrgðina. Segðu henni að hún sé ekki ein og að þetta verði allt í lagi, nú sért þú búin að opna augun og tilbúin að taka við ábyrgðinni.
Taktu ábyrgð á þér, þínu lífi og losaðu þig við tilfinningalegan þunga til að finna jafnvægi og innri ró.
Þegar þú lærir að hlusta á líkama þinn með samkennd, án þess að dæma og rífa þig niður og leyfir þér að finna hvað er þar, byrjar þú leiðina heim til þín.
Þegar þú byrjar að taka eftir og taka við því sem þú finnur í stað þess að berjast við það, muntu smám saman finna varanlegra jafnvægi og innri ró, þú þekkir þig betur og elskar þig meira.
Taugakerfið þitt finnur að það er í lagi að slaka á og þú getur það betur. Þú óttast ekki að vera með sjálfri þér og þarft ekki utanaðkomandi örvun eða annað sem heldur þér upptekini þegar þér leiðist.
Þú þorir að vera þú - loksins!
Kærleikur og ljós
Björk Ben
P.s. þessi grein er skrifuð til mín frá mér, því ég var þarna líka. En ég er viss um að þú, lesandi góður, hvort sem þú ert kona eða karl, eða annað kyn, getur tengt við hana ef þú ert tilbúin að sjá það. Svo ekki láta það trufla þig að ég skrifa til konu í þessari grein.



Comments