top of page
Search

Ert þú að fela eitthvað innra með þér?

  • Writer: Björk Ben
    Björk Ben
  • 4 days ago
  • 2 min read

Sem þú vilt ekki horfast í augu við?

„Trama er ekki það sem gerðist fyrir þig, heldur það sem gerðist innra með þér eftir þína upplifun”

– Dr. Gabor Maté


Áföll (Trama) og áhrifin af þeim geta verið allskonar. Stundum áttum við okkur ekki á eða samþykkjum að eitthvað hafi haft áhrif á okkur. Stundum lítur atburðurinn út fyrir að vera svo lítill að við skilgreinum hann ekki sem áfall. Við áttum okkur ekki á áhrifunum.


Klapp á öxlina eftir orð sem sviðu, öskur sem komu upp úr þurru en svo var sagt fyrirgefðu, vera skilin eftir ein eða einn í smá stund, einhver kom ekki sem lofaði að koma.


Þessi atriði líta ekki út fyrir að vera merkileg, en þau geta vakið innra með okkur tilfinningar sem setjast að með okkur og hafa oft mikil áhrif á okkur.


Andvökunætur, reiðisköst, ósveigjanlegar skoðanir, kvíði, þunglyndi, fíkn og sjálfsniðurrif eru hugsanlega einkenni sem koma fram, af því þessi litlu atriði höfðu meiri áhrif en við höldum, þau urðu til þess að við treystum ekki lengur og erum í baráttu innra með okkur, sem litar líf okkar. Hvernig okkur líður, hvernig við komum fram við aðra og okkur sjálf. Hvaða ákvarðanir við tökum, út frá ótta, en án þess að átta okkur á því.


Ótti eða afneitun


Í óttanum teljum við okkur líka trú um að við getum ekki breytt neinu og verðum oft bitur og minnum okkur endalaust á hversu erfitt er að lifa með öllu því sem þetta hefur haft áhrif á í okkar lífi. Kennum öðrum um okkar líðan.


Í afneitun um að eitthvað sé innra með okkur sem þarf að vinna með, stundum við allskonar sjálfshjálp og teljum okkur trú um að við séum góð. Stundum hreyfingu af kappi, borðum ofurhollt, lesum sjálfshjálparbækur, förum í jóga eða aðra nærandi tíma, tölum um hvað við erum „með þetta“.


Það skiptir ekki máli hvort þú tengir við....eða jafnvel ert farin að sjá að þú þarft að vinna með eitthvað innra með þér...þinni innri friður er í raun og veru ekki varanlegur fyrr en þú virkilega ert tilbúin að samþykkja þig þar sem þú ert núna, horfast í augu við þig, þora að viðurkenna hvernig þér líður og þora að elska ÞIG eins og þú ert.


Þora að vera þú sjálf eða sjálfur.

Þessi vinna er djúp, hún er erfið og hún er sársaukafull en hún drepur þig ekki og hún er þess virði. Trúðu mér, þú getur það, því ég get það og ég er bara manneskja eins og þú.


Fyrsta skrefið er að viðurkenna að innra með þér er eitthvað sem þú ræður ekki við alltaf, og sætta þig við að það sé þannig. Síðan þarftu stuðning við að losa þig við það og þar kem ég inn, eða einhver annar sjálfshálparkennari sem getur leiðbeint þér að sleppa tökunum.


Kærleikur og ljós

Björk Ben

 
 
 

Comments


bottom of page