top of page

Skilmálar Lífsins leiðsögumenn ehf. öðru nafni bjorkben.com

Upplýsingar um Lífsins leiðsögumenn ehf.


Nafn: Lífsins leiðsögumenn ehf.

Heimilisfang: Grænalaut 6, 230 Keflavík

Netfang: hallo@bjorkben.com


Skilmálar

Lífsins leiðsögumenn ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

 

Lífsins leiðsögumenn ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Allar vörur eru sendar með rekjanleika en ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Lífsins leiðsögumenn ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

 

Verð á vöru og sendingakostnaður
Allar vörur í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk ef þær eru virðisaukaskyldar samkvæmt íslenskum lögum, en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er mismunandi eftir þyngd og stærð sendingar.
 

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist.

​Lífsins leiðsögumenn ehf. bjóða upp á tíma og viðburði sem í þessum skilmálum verða hér eftir nefndir einu nafni viðburðir.

​​

ALMENNIR SKILMÁLAR FYRIR VIÐBURÐI

Hér eftir kallaðir viðburðir.

Lífsins leiðsögumenn ehf. áskilur sér rétt til að hætta við viðburð án fyrirvara.

Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu viðburðar eða full endurgreiðsla á miða.

​​

Ef dag- eða tímasetningu viðburðar er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja dag/tímasetningu. Ef ný dag/tímasetning hentar ekki á kaupandi rétt á endurgreiðslu, en Lífsins leiðsögumenn ehf. getur í tilkynningu um breytingu sett ákveðin tímamörk sem viðskiptavinir hafa til að falla frá kaupunum.

Allar skráningar á viðburði eru binandi. Þegar þú hefur keypt aðgang að viðburði, í gegnum vefinn, hefur þú 14 daga frá kaupum til þess að falla frá þeim og óska eftir endurgreiðslu á kaupunum með því að senda tölvupóst á hallo@bjorkben.com. Þetta á hins vegar ekki við um viðburði sem keyptir eru þegar minna en 14 dagar eru í viðburðinn.

​​

Ef minna en 14 dagar eru í atburðinn er ekki hægt að fá endugreiðslu nema vegna sérstakra aðstæðna hjá kaupanda sem hann getur sett fram með því að hafa samband með því að senda tölvupóst á hallo@bjorkben.com.

​​

Takmarkaður fjöldi. Á suma viðburði er fjöldi takmarkaður, og ef fleiri miðar eru keyptir á saman nafn, kennitölu, netfang eða kreditkort, þá áskilur Lífsins leiðsögumenn ehf., sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekinn er.

Með kaupum á þjónustu hjá Lífsins leiðsögumenn ehf., samþykkir þú að fá senda tölvupósta, svo sem upplýsingar um viðburðinn eða þjónustu tengda honum.

Lífsins leiðsögumenn ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög, persónuverndarstefna félagsins er aðgengileg á hér

 

SKILMÁLAR FYRIR VIÐBURÐI SEM FARA FRAM Í GEGNUM STREYMI

Þú átt rétt á endurgreiðslu ef þú keyptir óvart tvisvar aðgang að viðburði, eða oftar, vegna tæknierfiðleika, notaðir sama netfang í bæði/öll skipti og hafðir sannarlega samband til að fá aðstoð áður en fleiri en eitt skipti var framkvæmt.

Þú átt rétt á endugreiðslu ef viðburðinum var aflýst, eða hann fór ekki fram af einhverjum ástæðum.

Lífsins leiðsögumenn ehf. ber ekki ábyrgð á þeim tæknivandamálum sem geta komið upp hjá kaupanda og ábyrgist ekki að öll viðtæki, hugbúnaður og nettengingar geti nýst til þess að taka þátt í viðburði í gegnum streymi. 

Þú sem kaupandi berð ábyrgð á því að sá búnaður (viðtæki, hugbúnaður, nettenging) sem þú hyggst nota til þess að horfa á viðburðinn uppfylli kröfur til þess að geta tekið á móti streyminu. Gæði streymis getur verið mismunandi eftir þeim búnaði sem þú notar til þess að horfa á viðburðinn.

Endurgreiðsla vegna þess að streymi fellur niður í heild sinni eða að hluta, fer ekki fram, nema sannað þyki að það sé vegna atvika sem viðburðahaldari ber ábyrgð á. 

Viðburðahaldari ber ekki ábyrgð á því að streymi falli niður að hluta eða í heild sinni vegna aðstæðna er varða þriðja aðila sem hann getur ekki með sanngjörnum hætti borið ábyrgð á, t.d. veitanda fjarskiptaþjónustu, eða vegna utanaðkomandi aðstæðna sem viðburðahaldari getur ekki borið ábyrgð á eins og t.d. veðurs, hryðjuverka, stríðs, farsótta o.þ.h.

​​

Viðburðahaldari endurgreiðir ekki miða út af persónulegum aðstæðum kaupanda viðburða sem koma í veg fyrir að hann geti horft á viðburðinn í gegnum streymi.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.

ENGLISH

Information about Lífsins leiðsögumenn ehf. also known by the name bjorkben.com

 

Name: Lífsins leiðsögumenn ehf.

Address: Grænalaut 6, 230 Keflavík

Email: hallo@bjorkben.com

 

Terms

Lífsins leiðsögumenn ehf. also known as bjorkben.com reserves the right to cancel orders, e.g. due to incorrect price information or stop offering products without notice. The right to confirm orders by telephone is reserved.

 

Delivery of goods

All orders are processed the next working day after ordering. If the product is not in stock, a service representative will contact you and inform you of the estimated delivery time of the product. Of all orders distributed by Íslandspóstur, Íslandspóstur's delivery, warranty and transport terms apply to the delivery of the product. Lífsins leiðsögumenn ehf. is accordingly not liable for lost shipments or damage that may occur to goods in transit. All products are sent with traceability, but if a product is lost in the mail or suffers damage since it is sent from Lífsins leiðsögumenn ehf. to the person in question, the damage is the responsibility of the buyer.

 

Price of goods and shipping costs

All products in the online store include VAT if they are subject to VAT according to Icelandic law, but shipping costs are then added before payment is made. We send all products by Íslandspóstur directly to your door. Shipping costs vary depending on the weight and size of the shipment.

 

To exchange and return a product

A 14-day right of return is granted upon purchase of a product in exchange for the presentation of a sales invoice that satisfactorily shows when the product was purchased. The product must be unused, in perfect condition and in its original undamaged packaging when returned. If a product is sealed, the seal must not be broken. The return of a product is based on its original price, unless the product in question is on sale or on a special offer upon delivery. The price of the product is based on the day it is returned.

 

Faulty product

If a product is defective, customers are offered a new product instead and we pay all shipping costs in question or refund if required. In other respects, reference is made to the Consumer Purchases Act no. 48/2003 and the Consumer Contracts Act by icelandic Law.

Law and venue

This agreement is in accordance with Icelandic law. If a case arises because of him, it shall be brought before the Héraðsdómur Reykjaness. In other respects than those stated above, the terms of this provision of the current Act on Consumer Contracts no. 16/2016, the provisions of the Act on Liquidity Purchases no. 50/2000 as far as we can own and the provisions of the Act on Consumer Purchases no. 48/2003. All deadlines to which consumers are entitled in the Consumer Contracts Act begin to expire once the goods have been received.

bottom of page