top of page
Codex Image 30 Aug 2026, 11_57_17.png

1:1 - DJÚP INNRI VINNA

Að horfast í augu við skuggana þína

Sýndu hugrekki og fáðu stuðning til að fara út úr hausnum á þér. Róa taugakerfið og finna tilfinningar þínar.

Leyfu þér loksins að sleppa tökunum og öðlast innri frið.

Skapaðu frelsi, tengingu og taktu stjórnina í þínu lífi.

við erum ekki bara hugur okkar

Stundum vitum við bara án þess að geta útskýrt með huganum og það lætur okkur ekki vera fyrr en við hlustum...

HEILDRÆN NÁLGUN - DJÚP INNRI VINNA

Í þessari einstaklingsmiðuðu vinnu færðu minn stuðning og öflug verkfæri til að hjálpa þér að komast í tengingu við þig og umbreyta því sem heldur aftur af þér, eða hindrar þig í að lifa því lífi sem þú vilt.

Image 30.8.2026 at 12.33.jpeg

SLÖKUN

Sköpum ró í huga og taugakerfi þínu og tengingu við þína innri visku.

Image 30.8.2026 at 12.34.jpeg

DÁLEIÐSLA

Ferðumst að rótinni, losum um gamlar ályktanir og opnum fyrir nýja möguleika.

Image 30.8.2026 at 12.34 (2).jpeg

NLP

Breytum hugsunum, mynstrum og sköpum nýja merkingu.

Image 30.8.2026 at 12.34 (1).jpeg

SÓMATÍSK ÖNDUN

Styðjum líkamann við að losa sig við spennu og tilfinningar sem hafa setið föst.

Image 30.8.2026 at 12.34 (3).jpeg

ÞERAPÍA

Styðjum við djúpa vinnu með mildi, innsæi og virðingu fyrir þínu lífs ferðalagi.

sem börn getum við ekki borið ábyrgð á því sem við upplifum

Sem fullorðin berum við ábyrgð á því að vinna úr því sem við þurfum og taka stjórnina á okkar líðan, hegðun og hindrunum.

a3221a626ac6bc15bde8e57042c3a57052c220addca1d9dba4b837c8f29770a2.png

HVAÐ ER SKUGGAVINNA?

Skuggar okkar geyma alla þá hluta af okkur sem við höfum lært að bæla, fela og dæma. Þeir innihalda oftast sársauka eins og skömm, reiði, ótta eða höfnun, en líka ótrúlega valdeflandi kraft og visku þegar við förum að skoða þá.

Þegar þú vinnur með skuggana þína, getur þú:

  • Losað þig við allskonar takmarkandi hugsanir, hegðun og mynstur

  • Heilað sársauka og fundið tilfinningalegt frelsi og fundið innri frið

  • Skapað dýpri tengingu við þig og skilið þig betur

  • Átt betri og heilbrigðari samskipti við aðra og sett heilbrigð mörk

  • Samþykkt þig, elskað meira og lifað í meira samræmi við hver þú ert

  • Orðið meðvitaðri um þig og lífið

  • Tekið ábyrgð á þinni líðan og stjórnina í þínu lífi

,,

Þessi vinna breytti lífi mínu. Ég lærði að finna tilfinningar mínar og leyfa þeim að koma og fara í stað þess að sitja fastar og lita hvernig mér líður og hvernig ég kem fram við aðra.

Ég skil sjálfa mig miklu betur og skil af hverju ég er eins og ég er. Það gefur mér tækifæri til að vinna með það og breyta ef ég vil, því nú hef ég verkfæri til þess.

Ég er miklu fljótari að skilja erfiðar aðstæður í mínu lífi í dag og takast við þær á þann hátt að þær marka mig ekki.

,,

Ef þú ert tilbúin í þína skuggavinnu

Ég býð þér öruggt rými ti að horfast í augu við það sem bíður í skugganum og stíga svo inn í ljósið, þú hefur ekkert að óttast ég mun fylgja þér alla leið.

bottom of page