Að særa þá sem standa okkur næst
- Björk Ben

- Feb 22
- 3 min read

Þegar í samband er komið reynir á hvort fólk sé tilbúið að vaxa saman.
Ef aðili A fer inn í samband með opin huga, tilbúin að berskjalda sig, treysta og líta inn á við þegar eitthvað kemur uppá, en aðili B er ekki tilbúin að sjá sjálfa/n sig og tekur frekar pirring, reiði og óöryggið út á þeim sem standa honum næst. Þá eru allar líkur á að aðili A verða fyrir barðinu og berskjöldun hans verður að vopni fyrir aðila B sem getur ekki horft inn á við. Aðili B notar þannig berskjöldun aðila A til þess að að særa og vanvirða sem skapar svo aftur óöryggi og vantraust í sambandinu.
Aðili A sem hafði opnað sig og berskjaldað, getur ekki treyst og fer í staðinn í ótta og vanlíðan, sambandið er ekki lengur öruggur staður til tjá sig, vera sannur eða sönn. Aðili A upplifir jafnvel að hann hafi gert eitthvað rangt, þrátt fyrir að það sé ekki raunin. Aðili B sem kemur fram í sársaukanum neitar að sjá sig og sína hegðun, sem brýst fram aftur og aftur, því viðkomandi finnur ekki frið, heldur átök innra með sér.
Á meðan aðili B er þessari baráttu við sig sjálfa/n, ótta sinn, afleiðingar áfalla og óöryggi, getur hann ekki mætt aðila A með ást, umburðarlyndi og trausti. Hann getur ekki elskað skilyrðislaust, því hann elskar ekki sjálfa/n sig skilyrðislaust.
Aðili A mun á endanum dragast inn í þessi átöku aðila B, en það getur engin bjargað öðrum frá sínum eigin sársauka og úr verða eitruð samskipti þar sem ástin verður fjötruð með skilyrðum, draugagangi fortíðar, vantrausti og efa. Hamingjan í sambandinu verður mjög brothætt og aðeins á yfirborðinu í stundarkorn og sjaldnar og sjaldnar.
Af aðili A fjarlægir sig ekki úr svona sambandi mun það þyngja viðkomandi og hann gæti upplifað að finna sig ringlaðan, fullan af sjálfsefasemdum og jafnvel brotin. Aðili A gæti velt fyrir sér af hverju öll ástin sem hann kom með inn í sambandið sé ekki nóg til að bæta sambandið. En sannleikurinn er sá að það er ekki á ábyrgð aðila A að sambandið er komið á þennan stað.
Ef tveir aðilar eru ekki á sama stað hvað varðar andlegan þroska og innri tengingu þegar þeir fara í samband og eru ekki tilbúnir að þroskast og læra saman, þá geta þeir ekki farið í gegnum hvað sem er.
Aðili A getur ekki heilað sár aðila B sama hvað hann þráir það heitt.
Alvöru ást snýst ekki um að annar aðilinn fórni sinni hamingju eða vilja fyrir sársauka hins aðilans. Nánd snýst ekki um kynlíf og faðmlög eingöngu. Nánd snýst um heiðarleika og traust. Nánd snýst um að geta berskjaldað sig og sagt hvað sem er án þess að það sé notað gegn þér og þannig nánd er nauðsynleg í hamingjusömu sambandi.
Alvöru ást verður til þegar tvær manneskjur mætast sem eru nógu tengdar sér til að geta vaxið með hvoru öðru en ekki að annar aðilinn dragi hinn inn í vanlíðan og þunga orku.
Ef þú ert aðili A sem ert að reyna að mæta einhverjum eins og aðila B sem getur ekki horft á sjálfa/n sig, skaltu muna að þú átt betra skilið, þú átt skilið ást sem er ekki með skilyrðum og fyrirvörum.
Þú átt skilið að eiga maka sem þú getur treyst fyrir öllu sem þú þarft að segja án þess að það sé notað gegn þér nokkurn tímann.
Þú átt skilið að eiga maka sem kemur ekki illa fram við þig, öskrar eða særir, út frá innri vanlíðan.
Þín vellíðan ætti aldrei að ráðast af því hvað maki þinn er að eiga við innra með sér.
Þú átt skilið ást sem heldur utan um þig og elskar þig, sama hvar þú ert og hvar þú hefur verið.
Þú átt skilið maka sem elskar þig eins og þú ert, með öllum þínum kostum og göllum, fortíð þinni og plönum um framtíð.
Þú átt skilið að upplifa öryggi í sambandinu.
Og stundum þýðir það að elska sjálfa/n sig, að stíga út úr sambandi þar sem hinn aðilinn getur ekki mætt þér, því hann hefur ekki lært að elska sjálfa/n sig ennþá og sér það ekki einu sinni.
Og ef þú ert aðili B hvet ég þig til að sýna hugrekkið þitt og mæta þér, horfa virkilega inn á við og vinna vinnuna sem þarf til að finna innri frið, fyrr ertu ekki tilbúin að elska aðra.
Með þessum skrifum er ekki að tala um að einhver sé betri en annar, við erum bara mismunandi tengd okkur og þar af leiðandi passa einstaklingar stundum ekki saman, því þeir eru á svo ólíkum stað í sínum tilfinningalega þroska.
Kærleikur og ljós Björk Ben



Comments