top of page

Þakklæti

7 mín. hugleiðsla sem leiðir þig inn í þakklætistilfinninguna þína.

Fyrir þig sem þarft að komast út úr þungum hugsunum eða þráhyggju.

Fyrir þig sem þarft að gefa huganum hvíld.

Fyrir þig sem vilt fylla líkama þinn af góðri tilfinningu.

Fyrir þig sem vilt hækka orkuna þína.

Kæri hlustandi,

Þakklæti snýst ekki um að sannfæra okkur um að allt sé gott.
Það snýst um að opna augun fyrir því góða sem við höfum í okkar lífi.

Í þessari hugleiðslu færum við athyglina frá því sem vantar, því sem við óttumst og því sem við erum stöðugt að reyna að laga, og yfir í það sem er hér nú þegar.

Andardráttinn, líkamann, fólkið sem við elskum.
Augnablikin sem við gleymum stundum að taka eftir.
Allt það sem lífið hefur þegar gefið okkur.

Þegar við leyfum okkur að finna þakklætið, en ekki bara hugsa um það, heldur finna það í líkamanum, breytist eitthvað innra með okkur.

Við hættum í smástund að leita að næsta stað, næsta markmiði eða næsta hlut sem á að gera okkur hamingjusöm.

Og komum heim, innra með okkur, í smá stund

Settu á þig heyrnartólin, lokaðu augunum og gefðu þér þessa stund.

Þú þarft ekkert að gera.
Bara anda, finna og taka á móti.

Kærleikur
Björk Ben


bottom of page