

6 mánaða einstaklingsnámskeið
12 einkatímar
Þú færð meira aðhald og námskeiðið er meira sniðið að þér.
"Þetta er besta námskeið sem ég hef farið á og hefur hjálpað mér hvað mest af öllu sem ég hef prófað!"
Guðlaug
"Hef fengið meiri ró í hugann og innra með mér, þykir vænna um mig og má taka pláss, VERA ÉG!"
Olga Hrönn
"Ég er búin að setja það sem ég lærði í rútínuna og þetta hefur strax hjálpað mér."
Gugga
,,Í þessu námskeiði sameina ég allt það sem hefur reynst mér best í minni sjálfsvinnu og deili því með þér."
Björk Ben
Finnst þér þú vera einmanna og jafnvel ótengd sjálfri þér?
Ertu hrædd við að standa með þér og tjá þig?
Eru gömul áföll að trufla líf þitt og þú virðist ekki geta sleppt tökunum á þeim?
Finnst þér þú föst og líf þitt eintóm endurtekning sem sogar úr þér alla orku?
Viltu einkanámskeið því þú veist að þú þarft gott aðhald til að klára sjálfsvinnuna?
ÞÁ ER einstaklingsnámskeiðið ,,VERTU ÞÚ" FYRIR ÞIG!
Þorðu að
vera
þú
og
þú
öðlast
nýtt
líf
Vertu þú er ferðalag inn á við, þar sem þú tengist þér betur og lærir að þekkja þig og líf þitt betur.
Þú uppgötvar hver þú ert og hversu yndisleg mannvera þú ert. Þú lærir að kunna að meta þig og elska í dýpri vitund en út frá því við hvað þú starfar eða hversu vel þér hefur gengið efnislega í lífinu.
Fyrsti hlutinn snýst um að byggja upp sjálfstraustið þitt. Ég mun hjálpa þér að sjá hver þú í raun og veru ert. Þú færð að sjá styrkleika þína og veikleika og þú lærir að breyta orkunni þinni úr ótta og neikvæðri orku, yfir í kærleika og gleði.
Annar hlutinn snýst um að heila það sem þú þarft að heila. Skoða hindranir, hugsanavillur og fastar tilfinningar í þínu lífi, sem þú hefur geymt innra með þér oft á tíðum alveg ómeðvitað. Þú lærir að sleppa tökunum á áföllum og neikvæðum tilfinningum og úreltri trú sem er fast í líkama þínum, taugkerfi, huga og árunni þinni.
Þriðji hlutinn snýst um að læra að nota innsæið þitt og hvernig þú getur betur tekist á við lífið eftir námskeiðið og nýtt þér öll þau tól sem þú lærðir á námskeiðinu.
Ég bíð upp á persónulega og einlæga leiðsögn þar sem ég notast við ýmsar heilunaraðferðir. Ég er til staðar og styð þig og hjálpa þér í gegnum allt námskeiðið, þar sem þú munt uppgötva hver þú ert í raun og veru, verður sterkari manneskja og sérð lífið á annan hátt en áður.
Eftir námskeiðið þekkir þú leiðir til að takast á við lífið á nýjan og betri hátt.
Ég get kennt námskeiðið bæði á íslensku og ensku.
Efnið í námskeiðinu er byggt á fræðum sem verða meira og meira áberandi í heiminum í dag með meiri vitundarvakningu um að við erum andlegar verur sem erum öll tengd við hvert annað og náttúruna og Alheiminn.

Ef þú ert ekki að hlusta á þig og virða þínar þarfir, elskar þú þig í raun og veru ekki eins mikið og þú átt skilið!
Hvernig fer þetta fram?
Námskeiðið er þín einstaka vegferð og kennt í 12 einkatímum sem fara fram með 2ja vikna millibili. Það tekur um 6 mánuði að fara í gegnum námskeiðið.
Námskeiðið er þinn tími, þar sem þú gefur þér tíma og ást. Þú uppgötvar þig á nýjan hátt, þú elskar þig meira, þekkir þig betur og ert meira sú sem þú fæddist til að vera í þessu lífi. Þetta er tími sem þú munt aldrei sjá eftir að hafa nýtt í þína sjálfsvinnu.
Á milli tímana þar sem við hittumst gerir þú daglegar æfingar sem taka um 20 mín. á dag. Að gera þessi daglegu verkefni er það mikilvægasta í öllu námskeiðinu, því það getur enginn annar en þú unnið þína sjálfsvinnu. Ég verð því að nefna ef þú ert ekki tilbúin að gefa þér þessar 20 mín. á dag, ert þú ekki að sjá þitt virði eða elskar þig nóg, til að fara í gegnum sjálfsvinnu. Þú færð nýtt verkefni eftir hvern tíma sem eru tengd efni tímans hverju sinni.
Ert þú tilbúin að velja þig?
Þú getur hitt mig í persónu á höfuðborgarsvæðinu eða í gegnum Zoom ef þú býrð annarstaðar. Hver kennslustund er um 60 mín. löng.
Þú munt m.a. læra: núvitund, að hugleiða, nota innsæið þitt, skrifa dagbók, breyta hugsunum þínum yfir í uppbyggilegar og að sleppa tökunum af því sem þú þarft ekki lengur. Þú lærir að velja hvað hefur áhrif á þig og hvernig þú getur verið við stjórnina í þínu lífi.
Ég býð upp frían á 30 mín. kynningartíma í gegnum Zoom.

